Chat Wyspa Gier

Dating Naked Girls Dating

Chat Wyspa Gier » Í Spilun Mariamey.com: Underachievers Please Try Harder ! Chat Wyspa Gier

Chat Wyspa Gier

Nov

Í Spilun

mariamey  in Camera Obscura-Teenager Brúðkaupslagið mitt tilvonandi (ég mun reyndar þýða textann öðruvísi sko) Hægri smella og seifa

6. September

Í guðanna bænum skoðið Okkervil River nýju plötuna, The Stage Names.. endilega athugiði líka Black Sheep Boy með sama bandi. Ég er dolfallin.

Mars.. já 1 mars.

Kræst hvernig gat ég gleymt The Arcade Fire- Funeral .. þvílík og önnur eins snilldar plata. Svo var ég að fá Neon Bible í hendurnar, nýjasta platan þeirra og hún lofar svo innilega góðu. Ef þið hafið ekki heyrt af Arcade fire byrjiði þá á að tjekka á intervention, haiti, crown of love .. svo getið þið hlustað á restina. Það er bara allt gott með þessari sveit. Svo er ég jafnvel að fara að sjá þá í mars í köbenhavn.

Nokkur lög í heilanum í dag 13.1.07′ 09:42

Pulp- Tv movie and Sylvia af plötunni This is Hardcore.. Ég get bara ekki sagt annað en að ég elska Jarvis minn. Lögin eru líka svona mellow dramatísk.. allt um ást og tapaða ást og fleira. Fínir textar og frábær lög.

Ray Lamontagne- Platan-Till the sun turns black- Ja hann er góður hann er dramatískur og með frábærara rödd.. Hef nokkrum sinnum grenjað yfir plötunni hans þegar ég hef verið að væla um að ég sakna íslands.. Lög sem ég mæli með: Lesson Learned, Can I stay, Till the sun turns black og fleiri. Góður diskur hér á ferð

David Bowie- Ashes to ashes.. þarf ekkert að segja meira um þetta frábæra lag.. náðu þér í það !

Music from the OC.. já eins hallærislegur og Ryan í OC er þá eru þessir þættir stútfullir af frábærri tónlist. Mæli með að þið gúgglið OC music.. (ég er of löt til þess)

More to come….

Múm (íslensk)

skrifað 5.12.06′ 19:07

Mikil ósköp er ég hrifin af Múm. Hef reyndar verið hrifin af múm í alveg svakalega langan tíma. Alveg frá því árið 2002.. sem er alveg heil 4 ár. Man einu sinni þegar ég var í kringlunni með mömmu og við fengum okkur dominos sneið. Þar hitti ég Hafþór (einn af mínum elstu og bestu netvinum), hann var þá að vinna á dominos og sagðist vera að fara á tónleika (útgáfutónleika) hjá hljómsveit sem kallaði sig Múm. Það voru útgáfutónleikar “Loksins erum við engin” eða “Finally we are no one” Ég var þarna með mömmu roðnaði alveg heilan helling því jú ég hafði aldrei hitt haffa áður in real life og hann svaka sjarmör líka hehe.. Ég afþakkaði boðið samt því ég hafði þá önnur plön. Vildi virkilega að ég hefði farið með Haffa á tónleikana. Ég hef ekki orðið það fræg að sjá Múm. Því er nú ver og miður. Þessi máttur sem þau búa yfir er ólýsanlegur.

Í bandinu í dag eru Örvar (þessi við píanóið…fáránlega heitur finnst mér en víst frátekinn), Kristín Anna Valtýsdóttir og Gunnar Örn Tynes.

En nýjustu fréttir eru víst þær að Kristín Anna er að hætta í múm eða er hætt.. algjör synd.

Þessi músík er náttúrulega mjög experimental samt sem áður einhvernveginn ekki. Ég elska að læra, teikna og hugsa með þessa tónlist í botn.

Ég get varla mælt með einhverju einu lagi .. green grass of tunnel er alltaf í miklu uppáhaldi og einnig við erum með landakort af píanóinu. Ég mæli bara með múm virkilega ef þið eruð opin fyrir aðeins öðruvísi tónlist.

og

mumtheband

verði ykkur að góðu !

Shadow Parade (íslensk)

Fyrir um 2 mánuðum hafði ég ekki hugmynd um hvaða hljómsveit þetta var. Það eru svo margar góðar hljómsveitir á �?slandi sem eru svo underground..

Söngvari hljómsveitarinnar heitir Beggi Dan. Hann syngur gullfallega. Minnti mig fyrst pínulítið á Kalla í Tenderfoot. En svo hætti ég við, Beggi er aðeins öðruvísi. Mér finnst hann með afskaplega heillandi rödd og svo eru lögin þeirra í Shadowparade alveg rosalega falleg. Nú veit ég að “fallegt” er ofnotað orð… en það er bara það sem ég segi um þessi lög frá þeim sem ég hef heyrt. Langar mikið að eignast nýju plötuna þeirra.

Nú ætla ég að mæla með tveim lögum af Myspace síðunni þeirra þau eru Pass it on þar sem röddin hans Begga jaðrar við englasöng (já hef heyrt engla syngja), þarnæst Eyes meet sem er þræl gott einnig.

pChat Wyspa Gier » Í Spilun Mariamey.com: Underachievers Please Try Harder ! Chat Wyspa Gierl p Dating Dating Dating Tits eChat Wyspa Gier » Í Spilun Mariamey.com: Underachievers Please Try Harder ! Chat Wyspa Gierg Dating Dating Phone Girls