Hvað er músíkþerapía?
Músíkþerapía er ein tegund meðferðar þar sem skipulögð notkun tóna, hljóða og hreyfinga er beitt til að hjálpa viðkomandi skjólstæðingi við að auka vellíðan eða ná fram þeim mögulega þroska og eiginleikum sem skjólstæðingurinn býr yfir. Músíkþerapistinn vinnur eftir mismunandi músíkþerapíufræðum og aðferðum sem hentar hverjum og einum skjólstæðingi í samræmi við sett markmið. Gert er mat á ýmsum eiginleikum skjólstæðingsins, styrk hans og meðferðarþörf. Út frá þessu mati eru síðan gerð markmið sem unnið er með í þerapíunni. Músíkþerapíu er hægt að nota með margskonar markhópum t.d. líkamlega og andlega fötluðum einstaklingum, heyrnalausum einstaklingum, einstaklingum sem eiga erfitt með mál, börn og unglingum með hegðunarvandamál eða börnum sem eiga erfitt með nám. Einnig er hægt að nota músíkþerapíu með geðfötluðum einstaklingum og síðast en ekki síst öldruðum einstaklingum. Með öðrum orðum má nota músíkþerapíu með öllum börnum og fullorðnum sem hafa sérstakar andlegar, félagslegar, vitsmunalegar eða líkamlegar þarfir.
Það sem gerir músíkþerapíu frábrugðna öðrum meðferðum er sjálf tónlistin. Í hverjum tíma upplifir skjólstæðingurinn tónlistarlega reynslu af einhverju tagi. Sem dæmi má nefna „að impróvisera“ eða að spinna en þá býr skjólstæðingurinn til tónlist án undirbúnings með því að syngja eða að spila á einhver hljóðfæri. Skjólstæðingurinn ræður algjörlega hvað hann vill spila en oft út frá fyrirfram ákveðnu þema og músíkþerapistinn spilar með. Skjólstæðingurinn getur líka endurskapað tónlist en það gerir hann þegar hann syngur og spilar fyrirfram tilbúna tónlist. Einnig getur skjólstæðingurinn samið tónlist en þá hjálpar músíkþerapistinn skjólstæðingnum að skrifa tónlistina niður, hvort sem er með nótum, teikna og mála, eða með einhverjum öðrum hætti sem hentar viðkomandi skjólstæðingi. Skjólstæðingurinn getur einnig hlustað á tónlist af öllu tagi en þá er mjög mikilvægt að músíkþerapistinn finni hina réttu tónlist sem hentar viðkomandi skjólstæðingi svo að hann fái sem mest út úr þerapíunni. Það er alls ekki sama hvað er spilað og hér er gott að fá upplýsingar frá t.d. fjölskyldu skjólstæðingsins eða öðrum sem er náinn skjólstæðingnum. Það þarf enga tónlistarmenntun af neinu tagi til að geta nýtt sér músíkþerapíu. Tónlistin er alltaf sniðin að þörfum og þroska viðkomandi skjólstæðings.
pWebsite Www Naked Femals Öldrun 2002o f Naked tWebsite Www Naked Femals Öldrun 2002i Free Online